Golf

Ólafía Þórunn og Arnór Ingi Íslandsmeistarar í holukeppni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur verið sigursæl í ár.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur verið sigursæl í ár. Mynd/Daníel
GR-ingarnir Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Arnór Ingi Finnbjörnsson urðu í kvöld Íslandsmeistarar í holukeppni en mótið fór fram á Strandarvelli á Hellu. Arnór Ingi vann heimamanninn Andra Má Óskarsson úr GHR í úrslitaleik eftir bráðabana en Ólafía Þórunn vann Signýju Arnórsdóttur úr Keili í úrslitaleik.

Bæðu urðu þau Arnór og Ólafía Íslandsmeistarar í sveitakeppni með GR um síðustu helgi og þá varð Ólafía Þórunn Íslandsmeistari í höggleik fyrr í sumar. Ólafía vann því þrefalt í ár og gæti bætt fjórða titlinum við vinni hún Eimskipsmótaröðina líka.

Arnór Ingi vann heimamanninn Andra Má Óskarsson úr GHR í úrslitaleik. Bráðabana þurfti til að skera úr um sigurvegara en leikur þeirra fór alla leið á 19. holu. Andri Þór Björnsson GR vann Þórð Rafn Gissurarson úr GR í leiknum um þriðja sætið.

Ólafía Þórunn vann Signýju Arnórsdóttur úr Keili í úrslitaleik, 6/5. Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni varð í þriðja sæti eftir að hafa lagt Sunnu Víðisdóttur úr GR.

Lokastaðan í Íslandsmótinu í holukeppni:

Meistaraflokkur karla:

1. sæti: Arnór Ingi Finnbjörnsson GR

2. sæti: Andri Már Óskarsson GHR

3. sæti: Andri Þór Björnsson GR

4. sæt: Þórður Rafn Gissurarson GR

Meistaraflokkur kvenna:

1 sæti: Ólafía Þórunn Kristinsdóttir GR

2. sæti: Signý Arnórsdóttir GK

3. sæti Valdís Þóra Jónsdóttir GL

4 sæti. Sunna Víðisdóttir GR






Fleiri fréttir

Sjá meira


×