Golf

Thomas Björn vann annað mótið í röð

Stefán Árni Pálsson skrifar
Thomas Björn fagnar hér sigrinum.
Thomas Björn fagnar hér sigrinum. Mynd. / Getty Images
Danski kylfingurinn, Thomas Björn, bar sigur úr býtum á evrópska Mastersmótinu í Sviss, en hann lék á níu höggum undir pari á lokadeginum eða á 62 höggum.

Samtals lék Björn á 20 höggum undir pari og var hreinlega óstöðvandi, en þetta er annað mótið í röð sem kylfingurinn vinnur á evrópsku mótaröðinni.

Fjórum höggum á eftir Bjorn var Þjóðverjinn, Martin Kaymer. Þetta er í fyrsta skipti á ferlinum sem Daninn sigra tvö mót í röð og er greinilega á mikilli siglingu.

Norður-Írinn, Rory McIlroy, hafnaði í þriðja sæti á mótinu en hann lék samtals á 15 höggum undir pari. Thomas Björn hefur nú tekið örugga forystu um laust sæti í evrópska liðinu fyrir Ryder-bikarinn sem verður árið 2012.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×