Umsóknir í forúthlutun SVFR Karl Lúðvíksson skrifar 3. september 2011 20:41
Út er komin í fyrsta sinn rafræn söluskrá vegna forúthlutunar veiðileyfa hjá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur. Markmiðið er að kynna þau ársvæði og tímabil sem í boði eru á besta tíma 2012 og fyrirkomulag sölu veiðileyfanna. Í fyrstu atrennu sölunnar fyrir næsta veiðitímabil eru í boði dagar á frábærum ársvæðum, s.s. aðalsvæði Hítarár á Mýrum, Norðurá í Borgarfirði, Langá á Mýrum, Laxá í Dölum, Nesveiðar í Aðaldal, veiðisvæði Strauma og Leirvogsá. Söluskrána má nálgast hér að neðan í vefútgáfu og einnig sem PDF-skjal til að hlaða niður. Auk laxveiðileyfa gefst kostur á að bóka veiðileyfi í urriðaveiði í Laxárdal og Mývatnssveit líkt og undanfarin tvö ár. Þar er fjöldi daga sem í boði er sá sami og fyrir sumarið 2011. Eftirspurn eftir leyfum á urriðasvæðunum fyrir norðan hefur farið vaxandi enda algjörlega einstök á heimsvísu. Viltu panta leyfi strax? Í forúthlutun er einungis hægt að sækja um þau ársvæði og tímabil sem eru tilgreind í forúthlutunarsöluskrá. Önnur tímabil og ársvæði sem SVFR er með á sínum snærum fara í almenna úthlutun til félagsmanna SVFR í byrjun árs líkt og tíðkast hefur. Þegar sótt er um í forúthlutun gilda þær reglur að þeir sem voru við veiðar sumarið 2011 hafa forgang að sínum veiðidögum 2012. Hins vegar ber að hafa í huga að mikill meirihluti þeirra sem sækja um fá úrlausn sinna mála því framboðið er mikið. SVFR hvetur félagsmenn til að sækja um leyfi í forúthlutun. Félagsmenn þurfa ekki að nota A-umsókn sína í forúthlutun. Sjá nánar reglur forúthlutunar hér að neðan. Allar nánari upplýsingar um fyrirkomulag umsókna og verðlagningu, má nálgast á skrifstofu SVFR. Hægt er að senda fyrirspurnir á Harald Eiríksson á netfangið halli@svfr.is. Umsóknir í forúthlutun sendist jafnframt á halli@svfr.is. Mikilvægt er að taka skýrt fram hvaða svæði er verið að sækja um, hvaða daga og hversu margar stangir. Vinsamlegast takið fram nafn og kennitölu þess sem sækir um. Birt með góðfúslegu leyfi SVFR
Stangveiði Mest lesið Kaldakvísl farin að gefa vænar bleikjur Veiði Eystri Rangá komin í 2.050 laxa Veiði Miðfjarðará opnaði með 30 laxa holli Veiði Fluga dagsins: Góð í urriðann Veiði Þegar örflugurnar gefa best Veiði Ekkert að frétta úr Vífilsstaðavatni Veiði Veiðifréttir eru komnar út Veiði Gæs marineruð í jólabjór eða malti Veiði 197 laxar gengnir í gegnum teljarann í Langá á Mýrum Veiði Laxar farnir að sýna sig í ánum Veiði