Sport

David Greene varð heimsmeistari í 400 metra grindahlaupi

Stefán Árni Pálsson skrifar
David Greene fagnar hér sigrinum.
David Greene fagnar hér sigrinum.
David Greene, frá Bretlandi, sigraði í 400 metra grindahlaupi karla í Daegu á heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum í dag.

Hlauparinn kom í mark á tímanum 48,26 sekúndum, en Greene vann hlaupið eftir magnaðan endasprett. Javier Culson frá Púerto Ríkó kom annar í mark á 48,44 sekúndum.

L.J. Van Zyl frá Suður-Afríku heppti bronsið þegar hann kom í mark á tímunum 48,80 sekúndum.

„Ég er alveg búinn á því en ég samt hafði góða tilfinningu allt hlaupið,“ sagði Greene í sjónvarpsviðtali eftir hlaupip.

 

 

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×