Golf

Rose bætti stöðu sína fyrir lokamótið í úrslitakeppninni

Justin Rose sigraði á PGA móti í gær og er með í baráttunni um  risaverðlaunafé á lokamótinu.
Justin Rose sigraði á PGA móti í gær og er með í baráttunni um risaverðlaunafé á lokamótinu. Nordic Photos / Getty Images
Enski kylfingurinn Justin Rose sigraði á BMW meistaramótinu í golf í gær í úrslitakeppni PGA mótaraðarinnar. Þetta var þriðji sigur Rose á bandarísku mótaröðinni og er hann í ágætri stöðu fyrir lokamótið í Fed-Ex úrslitakeppninni sem fram fer í þessari viku í Atlanta. Þar er keppt um 10 milljóna dala verðlaunafé eða sem nemur um 1,2 milljörðum kr.

Rose var með fjögurra högga forskot fyrir lokahringinn en Ástralinn John Senden blandaði sér í baráttuna á lokahringnum. Rose gerði út um vonir Senden með því að vippa boltanum í holuna fyrir fugli á 17. braut. Rose endaði tveimur höggum á undan Senden. Rose er í þriðja sæti á stigalistanum fyrir lokamótið sem hefst á fimmtudaginn.

Senden endaði í öðru sæti á þessu móti á -13 en Geoff Ogilvy, sem einnig er frá Ástralíu, varð þriðji á -12. Luke Donald frá Englandi sem er efstur á heimslistanum endaði í fjórða sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×