Golf

Birgir Leifur í 23. sæti eftir þriðja hring

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Vonandi tekst Birgi Leifi að byggja á góðum leik sínum í dag í fyrramálið.
Vonandi tekst Birgi Leifi að byggja á góðum leik sínum í dag í fyrramálið.
Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG er í 23. sæti á opna austurríska mótinu í golfi að loknum þriðja hring. Mótið er hluti af Evrópumótaröðinni í golfi.

Daninn Thomas Nörret er í fyrsta sæti á níu höggum undir pari samanlagt. Birgir Leifur, sem spilaði á fjórum höggum undir pari í dag, er á tveimur höggum undir pari samanlagt.

Síðasti hringurinn verður leikinn á morgun og er að miklu að keppa fyrir Birgi Leif. Heildarverðlaunafé mótsins er ein milljón evra eða sem nemur um 160 milljónum íslenskra króna.


Tengdar fréttir

Fín byrjun hjá Birgi í Austurríki á fyrsta keppnisdegi

Birgir Leifur Hafþórsson hefur lokið leik á fyrsta keppnisdegi á opna austurríska meistaramótinu í golfi sem er hluti af Evrópumótaröðinni. Birgir lék á 69 höggum eða 3 höggum undir pari og er hann á meðal efstu manna þessa stundina en fjölmargir kylfingar eiga eftir að ljúka leik í dag.

Birgir Leifur líklega í gegnum niðurskurðinn

Birgir Leifur Hafþórsson kemst líklega í gegnum niðurskurðinn á opna austurríska mótinu. Birgir Leifur lék annan hring mótsins á 77 höggum eða fimm höggum yfir pari og er á tveimur höggum yfir pari samtals. Eins og staðan er núna dugar það Birgi Leifi í gegnum niðurskurðinn.

Birgir Leifur í banastuði í Austurríki

Birgir Leifur Hafþórsson fór á kostum á þriðja hring opna austurríska golfmótsins í morgun. Birgir Leifur lék hringinn á 68 höggum eða fjórum undir pari vallarins. Hann er því á tveimur höggum undir pari samanlagt eftir þrjá hringi.

Birgir Leifur: Þetta var frábært fyrir sjálfstraustið

Birgir Leifur Hafþórsson atvinnukylfingur úr GKG byrjaði mjög vel á Opna austurríska mótinu í golfi, sem tilheyrir Evrópumótaröðinni og hófst í Atzenbrugg í gær. Birgir lék fyrsta hringinn á 69 höggum, þremur höggum undir pari, sem skilar honum upp í 6. sætið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×