Golf

Ólafur Már komst ekki áfram á annað stig úrtökumótanna

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ólafur Már Sigurðsson.
Ólafur Már Sigurðsson. Mynd/GVA
Ólafur Már Sigurðsson, kylfingur úr GR, er úr leik á úrtökumótum Evrópumótaraðarinnar í golfi. Ólafur lauk leik í Þýskalandi í dag á 74 höggum eða tveimur höggum yfir pari. Hann var þremur höggum frá því að komast áfram.

Ólafur Már spilaði hringina fjóra samanlagt á 288 höggum. Tuttugu og tveir kylfingar komust áfram á næsta stig úrtökumótanna sem fram fer í Girona á Spáni í nóvember. Birgir Leifur Hafþórsson verður meðal keppenda.

Daninn Cristopher Lange stóð uppi sem sigurvegari á samtals 13 höggum undir pari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×