Golf

Tiger langt frá sínu besta og tapaði fyrir áhugamanni

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Tiger Woods náði sér ekki á strik í gær en að venju var gríðarlegur fjöldi áhorfenda sem fylgdist með kappanum.
Tiger Woods náði sér ekki á strik í gær en að venju var gríðarlegur fjöldi áhorfenda sem fylgdist með kappanum. AP
Tiger Woods sýndi enga snilldartakta þegar hann mætti til leiks á ný á PGA mótaröðina í golfi eftir sjö vikna fjarveru vegna meiðsla. Hann lék fyrsta hringinn á Frys.com meistaramótinu á 2 höggum yfir pari eða 73 höggum. Hann er í stórhættu að komast ekki í gegnum niðurskurðin og ef það gerist verður það í fyrsta sinn sem Woods lýkur keppni á eftir tvo hringi á tveimur atvinnumótum í röð.

Staðan á mótinu:

Woods lék síðast á PGA meistaramótinu sem fram fór um miðjan ágúst og á því stórmóti komst hann ekki áfram eftir tvo hringi. Woods sagði við fréttamenn að hann hefði æft mikið að undanförnu – og leikið 36 holur á dag til þess að komast í leikæfingu.

Áhugamaðurinn Patrick Cantlay sem keppir fyrir UCLA háskólann var með Woods í ráshóp og hafði hann betur gegn stórstjörnunni. Cantlay lék á 69 höggum. Fjórir bandarískir kylfingar deila efsta sætinu á fjórum höggum undir pari, 67 höggum. Brendan Steele, Briny Baird, Garrett Willis og Matt Bettencourt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×