Golf

Williams sleppur með skrekkinn

Williams og Tiger.
Williams og Tiger.
Yfirmenn PGA og Evróputúrsins hafa ákveðið að sleppa því að refsa kylfusveininum Steve Williams fyrir ummæli sem margir hverjir túlkuðu sem kynþáttaníð í garð Tiger Woods.

Williams lét ummælin falla á föstudag en hefur síðan beðið Tiger og aðra sem gætu hafa móðgast afsökunar.

"Ummæli Williams voru afar óviðeigandi en við vitum að hann hefur beðist afsökunar og við treystum því að slík framkoma muni ekki endurtaka sig," sagði í yfirlýsingu frá PGA.

Ekki hefur enn lekið út hvað Williams nákvæmlega sagði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×