Golf

Tiger missti forystuna en heldur í vonina

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tiger Woods.
Tiger Woods. Mynd/AP
Tiger Woods á enn möguleika á því að vinna sitt fyrsta mót í tvö ár þrátt fyrir að hafa misst niður þriggja högga forystu á þriðja degi á Chevron World Challege mótinu sem fram fer í Kaliforníu.

Zach Johnson endaði hringinn á ótrúlegu höggi á 18. holunni þegar annað högg hans fór ofan í holu og gaf honum örn. Johnson var þremur höggum á eftir Tiger fyrir daginn en er nú með eins högg forskot á Woods fyrir lokadaginn.

Þetta var annað mótið í röð sem Tiger missir forystu á þriðja hring en hann lék þó mun betur á þessum þriðja hring en fyrir þremur vikum á opna ástralska mótinu.

Zach Johnson lék á 68 höggum eða fjórum höggum undir pari en Tiger lék á 73 höggum eða einu höggi yfir pari. Tiger fékk þrjá skolla á par fimm holum en vindurinn eyðilagði mörg lofandi högg hjá honum.

„Ég fékk kannski þrjá skolla á par fimm holum en ég lenti bara tvisvar í því að þrípútta og spilaði vel. Ég átti mörg góð högg sem breyttust í slæm högg út af vindhviðum. Svona er þetta stundum en ég á enn möguleika á því að vinna," sagði Tiger Woods.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×