Körfubolti

Love tók sæti Yao Ming í stjörnuleiknum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Kevin Love.
Kevin Love.

Frákastakóngurinn Kevin Love er á leið í stjörnuleik NBA-deildarinnar. David Stern, yfirmaður deildarinnar, ákvað að gefa Love sæti Yao Ming í Vesturstrandarliðinu en Ming er meiddur og getur ekki spilað.

Það kom mörgum á óvart að hann skyldi ekki vera valinn meðal varamanna í liðið en strákurinn er með 21,4 stig og 15,5 fráköst að meðaltali í leik. Skotnýtingin er þess utan tæplega 44 prósent.

Hann er búinn að ná tvöfaldri tvennu í 34 leikjum í röð. Stern tók í taumana og eru margir ánægðir að sjá Love í liðinu.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×