Körfubolti

Kobe getur alveg troðið eins og ungu strákarnir - myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kobe Bryant.
Kobe Bryant. Mynd/AP
Kobe Bryant átti fínan leik í nótt þegar Los Angeles Lakers vann 102-98 sigur á Philadelphia 76ers og endaði með því tveggja leikja taphrinu á heimavelli sínum. Kobe var með 33 stig á 35 mínútum í leiknum og nýtt skotin sín vel.

Kobe hitti úr 13 af 24 skotum sínum í leiknum og þar á meðal er glæsileg troðsla hans þegar aðeins fimm mínútur eru liðnar af fyrsta leikhlutanum.

Bryant fékk þá boltann á eigin vallarhelmingi, keyrði upp að körfunni og lét vaða með báðum höndum. Það má sjá þessa stórglæsilegu troðslu með því að smella hér.

Kobe Bryant er á sínu 33 aldursári og ekki vanur því að troða mikið í "traffík" en með þessari troðslu sýndi hann að kappinn getur alveg troðið eins og ungu strákarnir.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×