Körfubolti

Iceland-Express deildin: Njarðvík í fallsæti

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Fjölnismenn töpuðu en ÍR vann sinn leik í kvöld.
Fjölnismenn töpuðu en ÍR vann sinn leik í kvöld. Fréttablaðið/Stefán

Þrír leikir fóru fram í Iceland Express deild karla í körfubolta í kvöld. ÍR, Stjarnan og Tindastóll unnu leiki kvöldsins.

Þrátt fyrir þjálfaraskipti í vikunni ná Njarðvíkingar enn ekki að rétta úr kútnum. Nú lágu þeir fyrir ÍR á heimavelli, 89-97.

Stjarnan gerði góða ferð í Grafarvoginn og lagði Fjölni og nartar því enn í hælana á Keflavík og KR sem eru með tveimur stigum meira í töflunni.

Þá vann Tindastóll góðan sigur á Haukum og komst þar með upp að Hafnfirðingum í töflunni.

Tölfræði leikjanna:

Njarðvík 89-97 ÍR

Njarðvík:
Christopher Smith 21/5 fráköst/6 varin skot, Jóhann Árni Ólafsson 17/8 stoðsendingar, Guðmundur Jónsson 14, Rúnar Ingi Erlingsson 13/5 stoðsendingar, Friðrik E. Stefánsson 8/4 fráköst, Egill Jónasson 6/4 fráköst, Lárus Jónsson 4/4 fráköst, Hjörtur Hrafn Einarsson 4/4 fráköst, Páll Kristinsson 2.

ÍR: Nemanja Sovic 32/6 fráköst, James Bartolotta 32/6 fráköst, Kelly Biedler 17/12 fráköst/5 stoðsendingar, Hjalti Friðriksson 9/7 fráköst, Kristinn Jónasson 3, Níels Dungal 2/4 fráköst, Sveinbjörn Claesson 2.



Fjölnir 92-97 Stjarnan

Fjölnir: Brandon Ja Juan Springer 20/9 fráköst, Ingvaldur Magni Hafsteinsson 20, Jón Sverrisson 17/5 fráköst, Tómas Heiðar Tómasson 15/3 varin skot, Ægir Þór Steinarsson 13/8 fráköst/14 stoðsendingar, Arnþór Freyr Guðmundsson 3, Sigurður Þórarinsson 2, Sindri Kárason 2.

Stjarnan: Justin Shouse 24/4 fráköst, Jovan Zdravevski 23/7 fráköst, Renato Lindmets 16/4 fráköst, Fannar Freyr Helgason 16/9 fráköst, Daníel G. Guðmundsson 9, Marvin Valdimarsson 7/7 fráköst, Guðjón Lárusson 2.

Tindastóll 95-88 Haukar

Tindastóll:
Hayward Fain 28/8 fráköst/5 stolnir, Sean Kingsley Cunningham 20/6 stoðsendingar, Dragoljub Kitanovic 15/7 fráköst, Friðrik Hreinsson 13, Helgi Freyr Margeirsson 10, Helgi Rafn Viggósson 5/4 fráköst, Svavar Atli Birgisson 4/7 fráköst.

Haukar: Gerald Robinson 22/8 fráköst, Haukur Óskarsson 17/5 fráköst, Sveinn Ómar Sveinsson 16/4 fráköst, Semaj Inge 12/8 fráköst, Örn Sigurðarson 10, Sævar Ingi Haraldsson 5, Davíð Páll Hermannsson 4, Emil Barja 2/4 fráköst/5 stoðsendingar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×