Körfubolti

Njarðvík tekur á móti KR í kvöld

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Njarðvík þarf að hafa góðar gætur á Pavel í kvöld.
Njarðvík þarf að hafa góðar gætur á Pavel í kvöld.

Það er stórt kvöld fram undan í körfunni en fjórir leikir verða spilaðir í Iceland Express-deild karla og áhugaverðasti leikurinn er í Njarðvík.

Njarðvík hefur verið að rétta úr kútnum í síðustu leikjum en KR-ingar hafa einnig verið á fínni siglingu.

KR kemst með sigri í kvöld upp í annað sæti deildarinnar en Njarðvík er að berjast við að komast inn í úrslitakeppnina.

Aðrir leikir kvöldsins eru einnig áhugaverðir. Botnliðin tvö mætast sem og Tindastóll og Stjarnan sem eru hlið við hlið.

Leikir kvöldsins:

Njarðvík - KR

ÍR - Haukar

Tindastóll - Stjarnan

KFÍ - Hamar

Allir leikirnir hefjast klukkan 19.15




Fleiri fréttir

Sjá meira


×