Körfubolti

Chicago lagði Dallas - Rose skoraði 26 stig

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Derrick Rose skorar hér gegn Dallas í gær.
Derrick Rose skorar hér gegn Dallas í gær. AP

Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt þa sem að sigur Chicago Bulls gegn Dallas bar hæst. Lokatölur 82-77. Derrick Rose skoraði 26 stig fyrir Bulls og hann gaf að auki 9 stoðsendingar. Þjóðverjinn Dirk Nowitzki skoraði 19 fyrir Dallas. Carlos Boozer lék ekki með Bulls þriðja leikinn í röð vegna meiðsla á ökkla.

Portland vann fjórða leikinn í röð með 108-93 sigri gegn LA Clippers. Spánverjinn Rudy Fernandez skoraði 17 stig fyrir Portland. Eric Gordon skoraði 35 stig fyrir Clippers.

Úrslit frá því í gær.

Charlotte - Philadelphia 100-97

Chicago - Dallas 82-77

Portland - LA Clippers 108-83





NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×