Körfubolti

Ingi Þór: Stefnan að halda toppsætinu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jón Ólafur Jónsson með Inga Þór Steinþórssyni.
Jón Ólafur Jónsson með Inga Þór Steinþórssyni. Mynd/Stefán

Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Íslands- og bikarmeistara Snæfells, var í dag valinn besti þjálfari fyrri hluta Iceland Express-deildar karla.

Snæfell er sem stendur í efsta sæti deildarinnar en liðið mætir Fjölni á fimmtudaginn.

„Stefnan hjá okkur er að halda toppsætinu en við þurfum samt að gera miklu betur til að halda því en við höfum gert hingað til," sagði Ingi Þór í samtali við Vísi.

„Deildin í ár er mjög jöfn, alveg eins og í fyrra. Ef eitthvað er eru fleiri lið í baráttunni að þessu sinni. Það er í raun ómögulegt að spá fyrir um úrslit leikja."

„Þannig verður það einnig gegn Fjölni. Þetta er sprækt lið sem er með nýjan Bandaríkjamann sem við höfum ekki séð spila áður. Þetta er því stórhættulegur leikur."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×