Rain Dear tískulínan á koppinn 7. apríl 2011 08:25 Heiða Eiríksdóttir og Þorbjörg Valdimarsdóttir hanna hátískufatnað á konur af öllum stærðum og gerðum. Mynd/Bjarney Lúðvíksdóttir
Þorbjörg Valdimarsdóttir textílhönnuður og Heiða Eiríksdóttir fatahönnuður frumsýndu sína fyrstu fatalínu undir merkinu Rain Dear, á hátíðunum HönnunarMars og Reykjavík Fashion festival nú á dögunum. Þar vöktu þær athygli bæði erlendra og innlendra gesta og þótti línan koma á óvart. „Við fengum frábær viðbrögð og mikla athygli og hittum meðal annars blaðamenn stórra erlendra tískutímarita um helgina. Það skiptir alltaf miklu máli fyrir hönnuði, upp á trúverðugleika vörunnar," útskýrir Heiða. „Við hönnum hátískufatnað á konur á aldrinum 25 til 55 ára af öllum stærðum og gerðum. Við vinnum mikið með plastefni en Rain Dear er þó ekki hugsað sem útivistarfatnaður, heldur hátíska," segir Heiða.Línan vakti athygli bæði innlendra og erlendra gesta á Reykjavík Fashion Festival og stefna hönnuðirnir á markaðssetningu erlendis.Línan inniheldur meðal annars litríkar kápur, slár og samfestinga. Fyrirtækið hafa þær stöllur undirbúið síðustu tvö ár og eru nú þegar komnar í samvinnu við ítalskan framleiðanda sem bæði býr til efnið í flíkurnar og framleiðir þær. „Allt efnið er sérútbúið fyrir okkur en við látum vinna saman ólíkar tegundir af efnum í eitt, sem er nýsköpun út af fyrir sig, en efnið er síðan gert vatnshelt. Plast er auðvitað ekki umhverfisvænt efni en stefnan hjá okkur er að hver kápa verði afhent í tösku sem nýtist kaupandanum áfram. Í framhaldinu verður svo skilagjald á gömlum kápum þannig að afsláttur fæst af nýrri kápu og við endurnýtum gömlu kápuna í hluti í samvinnu við aðra hönnuði."Tískulínan Rain Dear er ekki hugsuð sem útivistarfatnaður þó vatnsheld sé, heldur hátísku götufatnaður.Eftir vel heppnaða frumsýningu er næsta skref að koma línunni á markað. Von er á fyrstu vörunum í verslanir snemma árs 2012 og er stefnan tekin á útlönd. „Við stefnum á Bretlandsmarkað en erum að vinna markaðskönnun í Skandinavíu líka. Nú leitum við að umboðs- og dreifingaraðilum til að koma vörunni á markað, en varan fer í verslanir í byrjun árs 2012." Heiða segir mikinn kraft vera í íslenskum hönnuðum, HönnunarMars og RFF sanni það og sýni. Hún segir aðstandendur hátíðanna eiga hrós skilið fyrir fagleg vinnubrögð.Efnin eru samsett úr ólíkum efnistegundum hjá ítölsku framleiðslufyrirtæki, sem framleiðir einnig flíkurnar.„Það var frábærlega að öllu staðið, sérstaklega að fá hingað blaðamenn frá virtum erlendum fjölmiðlum í hönnunargeiranum. Mér fannst einnig mikil samstaða meðal íslenskra hönnuða, sem er mikilvægt." heida@frettabladid.is
HönnunarMars RFF Mest lesið David Hockney er látinn Menning Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Lífið Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Bíó og sjónvarp Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Glansandi hár er nýi lúxusinn – af hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“? Lífið samstarf Fleiri fréttir „Það má herma“ Stelpurnar í Kjólum og konfekti spá fyrir um úrslit HM „Ég sef í gallabuxum“ Áslaug kvaddi í hvítu útskriftardragtinni „Mun aldrei geta þakkað henni nógu mikið fyrir“ Buxur með opið klof vöktu athygli Hver prjónuð peysa sendi skýr skilaboð til þolenda ofbeldis „Auðveldara hér að vera bara eins og maður er“ Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Nýjasta sumartrendið í boði Travolta Minnist föður síns með verðmætu verkefni Aðalpæjur landsins komu saman Dreifði ættjarðarástinni til London og Parísar Gellur elska hönnun Tíundi bekkur slys í heild sinni Fimmhundruð manns í örlagaríku teiti Gusugleði í Vesturbæjarlaug Mikil hvatning ef fólk hlær að fötunum Þessi sigruðu Met Gala Met Gala-bölvunin alræmda Hittu sjálfan Jacquemus í New York Gjörningar og gleði á HönnunarMars Sjá meira