Íslensk kort ekki verið misnotuð 28. apríl 2011 05:30 Leikjatölva Eigendur Playstation 3 sem notað hafa greiðslukort til að kaupa vörur í verslun Sony ættu að fylgjast með notkun á kortinu á næstunni.
Ekkert bendir enn til þess að íslensk greiðslukort hafi verið misnotuð eftir að persónuupplýsingum um Playstation 3 notendur sem keypt hafa vörur í gegnum netverslun var stolið í gegnum vef Sony. Alls eru um 77 milljónir notenda skráðar en ekki hefur verið upplýst hvort þjófnaðurinn náði til þeirra allra eða aðeins hluta. „Við brýnum fyrir okkar korthöfum sem hafa verið að versla í gegnum þessar tölvur að fylgjast grannt með notkun á kortunum sínum,“ segir Kristján Harðarson hjá kortafyrirtækinu Valitor. Hann segir að kortin hafi þegar verið sett á sérstakan gátlista hjá fyrirtækinu, en ekki hafi komið upp nein tilvik þar sem kortanúmerin hafa verið misnotuð. Komi misnotkun í ljós verði kortunum lokað og ný gefin út. Vefversluninni var lokað í síðustu viku án skýringa, en Sony hefur nú upplýst að einhver eða einhverjir hafa nýtt sér galla á kerfi Sony og sótt skjal með upplýsingum um notendur. Í skjalinu voru nöfn, heimilisföng, netföng, símanúmer, viðskiptasaga, greiðslukortanúmer og aðrar viðkvæmar persónuupplýsingar. Sony gæti þurft að greiða sekt fyrir að verja ekki persónuupplýsingarnar betur en raun bar vitni. Samkvæmt frétt BBC um málið hafa bresk stjórnvöld hafið rannsókn á því hvernig stendur á því að hægt var að nálgast þessar upplýsingar svo auðveldlega. - bj
Leikjavísir Mest lesið Edrú í sorg: Sonarmissir, á hnefanum og eiginkonan hættir að anda Áskorun Hugmyndir að hámhorfi um páskana Bíó og sjónvarp Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Lífið „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Lífið Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr Lífið Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Lífið Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Lífið Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Lífið KK átti salinn - en tónlistin varð útundan Gagnrýni Pungrakvélin hefur slegið í gegn hjá Chad Grooming Lífið samstarf