Og allir að hoppa svo! Trausti Júlíusson skrifar 6. júní 2011 10:30
Tónlist Don't Want to Sleep. FM Belfast. FM Belfast sló í gegn svo um munaði með fyrstu plötunni sinni How to Make Friends sem kom út haustið 2008. Það getur verið erfitt að fylgja eftir svo vel heppnaðri frumsmíð, en meðlimir FM Belfast hafa greinilega ákveðið að flana ekki að neinu og nú, tæpum þremur árum seinna, er plata númer tvö loksins komin út. How to Make Friends var elektrópopp partíplata sem einkenndist af flottum töktum, grípandi melódíum og ýktum falsettu-viðlögum sem maður gat ekki annað en sungið með. Sama lýsing gæti að miklu leyti átt við um Don't want to Sleep. Stuðið er enn til staðar og viðlögin eru enn jafn grípandi. Hins vegar hafa þau Árni Rúnar, Lóa, Árni Vilhjálms og Örvar unnið mikið í hljómnum. Nýja platan er mun fjölbreyttari tónlistarlega. Það er fullt af flottum lögum hér. I Don't Want to go to Sleep Either er smellur (myndbandið má sjá hér fyrir ofan) og það sama er hægt að segja um upphafslagið Stripes, hið rokkaða Noise og lögin American, Believe, We Fall, Vertigo og hið skemmtilega gerviefnalega Mondays. Það eru ellefu lög á Don't Want to Sleep og þau eru flest góð þó að platan detti aðeins niður á endasprettinum. Don't Want to Sleep er á heildina litið fínt framhald af How to Make Friends. Tónlistin hefur þróast töluvert, en gleðin er enn þá til staðar. Mann langar að dansa, eða allavega hoppa og baða út öllum öngum þegar maður hlustar á hana. Gaman. Niðurstaða: Þó að tónlistin hafi þróast er stuðið á sínum stað á FM Belfast plötu númer tvö.
Mest lesið Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Lífið Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Lífið „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Lífið Opnar sig um kvíða og þunglyndi Lífið Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls Lífið Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Lífið Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Lífið Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Lífið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Lífið Fleiri fréttir Hvað er það versta sem þú hefur gert? Allir komust lifandi út – nema Beethoven Hugljúft geimævintýri líður fyrir þreytandi þúsaldarhúmor KK átti salinn - en tónlistin varð útundan Kjánalegar klisjur og kærulausir kappar Misheppnaður mömmuleikur Hugljúft en stutt gaman Hver þarf pizzu þegar Laufey er komin á sviðið? Innistæðulaus stjörnudýrkun: Plácido Domingo hefði betur setið heima Hvað eiga frægasti djasstónlistarmaður heims og íslensk kráka í Feneyjum sameiginlegt? Öskrað á of litlu sviði Lengsti klukkutími ævinnar Sjá meira