Maður er manns gaman Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 3. september 2011 11:00
Bíó. Á annan veg. Leikstjóri: Hafsteinn Gunnar Sigurðsson. Aðalhlutverk: Hilmar Guðjónsson, Sveinn Ólafur Gunnarsson, Þorsteinn Bachmann. Sögusviðið er níundi áratugurinn. Finnbogi og Alfreð eru vegavinnumenn sem eyða heilu sumri saman á ótilgreindum sveitavegi og mála gular línur og berja stikur ofan í jörðina. Finnbogi er ástmaður systur Alfreðs, og mönnunum semur ágætlega þrátt fyrir stöku árekstra. Svona hefst kvikmyndin Á annan veg, sem er fyrsta mynd leikstjórans Hafsteins Gunnars Sigurðssonar. Stórbrotin náttúra Íslands spilar stórt hlutverk í myndinni og fjarlægðin við ys og þys bæjarins skapar einmanalega stemningu. Ég gæti hugsað mér að berja niður nokkrar stikur með þeim félögum en síðan þyrfti ég að láta mig hverfa. Menn þurfa að vera ansi samstilltir til að þola nærveru hvor annars viku eftir viku í einangrun, og þó að Alfreð keyri í bæinn um helgar til að „fá utan um hann" verða samskipti mannanna sífellt súrari eftir því sem líður á sumarið. Á annan veg er þroskasaga. Í upphafi myndar fær áhorfandinn þá tilfinningu fyrir Finnboga að hann sé sá þroskaði og klári en að Alfreð sé metnaðarlaus vitleysingur. Ekki er þó allt sem sýnist og í ljós kemur að Finnbogi á talsvert eftir ólært um lífið og tilveruna, og smám saman rennur það upp fyrir honum að hann getur lært heilmikið af vitleysingnum. Þegar Alfreð fer í fýlu og lætur sig hverfa getur Finnbogi varla barið niður vegastiku, og lýsir sú sena vináttu þeirra vel. Eins ólíkir og þeir eru virðast þeir háðir hvor öðrum, bæði andlega og í vinnunni. Maður er jú manns gaman. Það eru þeir Hilmar Guðjónsson og Sveinn Ólafur Gunnarsson sem fara með hlutverk félaganna og samleikur þeirra er óaðfinnanlegur. Þorsteini Bachmann bregður fyrir annað slagið í líki vörubílstjóra og bannsettur senuþjófurinn sem hann er fær mann til að vilja sjá miklu meira af honum. Stundum fékk ég það reyndar á tilfinninguna að hann væri hreinlega ekki til. Annað hvort ímyndun mannanna eða hugsanlega draugur. Útlit myndarinnar er áferðarfallegt og minimalískt, og myndatakan er hreinasta afbragð. Hafsteinn leikstjóri heldur vel utan um söguna og leyfir senunum að dragast vel á langinn, og hentar það myndinni fullkomlega. Endir myndarinnar er þó helst til snubbóttur, og hann er það eina sem ég finn að annars stórgóðri mynd. Niðurstaða: Óvenju þroskuð kvikmynd frá nýliðanum Hafsteini, krydduð hæfilegum skammti af húmor og depurð.
Mest lesið Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Lífið „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Lífið Tay Keith er fallinn frá aðeins 29 ára að aldri Tónlist Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Lífið Laufey Lín er mætt til Springfield Bíó og sjónvarp Leikkonan Margrét Helga Jóhannesdóttir er látin Lífið Ef meðferðarlotan beri ekki árangur verði hann ekki í næstu þáttaröð Bíó og sjónvarp Hönnuðir nota blóm á mjög óvenjulegan hátt Lífið Hipsumhaps rýfur þögnina Tónlist Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Lífið Fleiri fréttir John Grant tók Eldborg með áhlaupi — en hjartað vann stríðið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Enginn venjulegur sjötugur maður Langdregnir brandarar stoppa ekki stuðið Suddalega slappt Stjörnustríðsslor Plastgangsterar: Þegar Herra Hnetusmjör týndist í Laugardalshöllinni Lítið kjöt á beinum rándýrsins Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Sjá meira
Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Lífið
Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Lífið