Framvarðasveitin Trausti Júlíusson skrifar 13. október 2011 10:00 Snillingarnir í ADHD leika lausum hala á landamærum rokks og djass. Á heildina litið er þetta fyrirtaks plata sem ætti að höfða jafnt til djass- og rokkáhugafólks.
Tónlist. Adhd 2. Adhd. Hljómsveitin ADHD er skipuð fjórum af flinkustu hljóðfæraleikurum Íslands, þeim Davíð Þór Jónssyni hljómborðsleikara, Ómari Guðjónssyni gítarleikara, Óskari Guðjónssyni saxófónleikara og Magnúsi Tryggvasyni trommuleikara. Þeir hafa allir tekið þátt í mörgum ólíkum verkefnum og eru jafnvígir á margar tónlistartegundir þó að þeir komi úr djassinum. Þegar fyrri platan ADHD leit dagsins ljós kom það á óvart hvað tónlistin var róleg og hamin. Maður átti von á einhverjum látum vegna nafnsins. Það kraumaði samt orka og hiti undir niðri í tónlistinni. Á nýju plötunni, ADHD2, heldur sveitin áfram að vinna með svipaða hluti. Platan er mjög vel heppnað sambland af djassi og rokki og fer víða. Sums staðar minnir hún á gamlan djassrokkbræðing (t.d. í upphafslaginu IFE) en oftar leika þeir félagar lausum hala á einhverjum óskilgreindum mörkum fyrrnefndra tónlistarstefna. Þeir sýna allir stjörnutakta á hljóðfærin eins og við var að búast, en auk spilalegra tilþrifa vinna þeir skemmtilega með áherslur og hljóðeffekta og útkoman er lifandi og síbreytileg. Á heildina litið er þetta fyrirtaks plata sem ætti að höfða jafnt til djass- og rokkáhugafólks. Niðurstaða: Snillingarnir í ADHD leika lausum hala á landamærum rokks og djass.
Mest lesið Björk og Yara nýtt par Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Fleiri fréttir John Grant tók Eldborg með áhlaupi — en hjartað vann stríðið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Enginn venjulegur sjötugur maður Langdregnir brandarar stoppa ekki stuðið Sjá meira