Grýlukvæði Jóhannesar úr Kötlum 1. nóvember 2011 00:01
Grýla hét tröllkerling leið og ljót, með ferlega hönd og haltan fót. Í hömrunum bjó hún og horfði yfir sveit, var stundum mögur og stundum feit. Á börnunum valt það, hvað Grýla átti gott, og hvort hún fékk mat í sinn poka og sinn pott. Ef góð voru börnin var Grýla svöng, og raulaði ófagran sultarsöng. Ef slæm voru börnin varð Grýla glöð, og fálmaði í pokann sinn fingrahröð. Og skálmaði úr hamrinum heldur gleið, og óð inn í bæina - beina leið. Þar tók hún hin óþekku angaskinn, og potaði þeim nið'r í pokann sinn. Og heim til sín aftur svo hélt hún fljótt, - undir pottinum fuðraði fram á nótt. Um annað, sem gerðist þar, enginn veit, - en Grýla varð samstundis södd og feit. Hún hló, svo að nötraði hamarinn, og kyssti hann Leppalúða sinn. Svo var það eitt sinn um einhver jól, að börning fengu buxur og kjól. Og þau voru öll svo undurgóð, að Grýla varð hrædd og hissa stóð. En við þetta lengi lengi sat. Í fjórtán daga hún fékk ei mat. Þá varð hún svo mikið veslings hró, að loksins í bólið hún lagðist - og dó. En Leppalúði við bólið beið - og síðan fór hann þá sömu leið. Nú íslenzku börnin þess eins ég bið, að þau láti ekki hjúin lifna við. Heimild: Jólin koma eftir Jóhannes úr Kötlum frá 1932. Kvæðið er birt á vefsíðunni með leyfi Svans Jóhannessonar.
Mest lesið Jólalag dagsins: Jógvan Hansen og Friðrik Ómar sungu um mömmu kyssa jólasvein á íslensku og færeysku Jól Psy og Wham saman í jólasmell Jólin Kjúklingur með ljúfu jólabragði Jól Óhefðbundinn jólamatur meistarakokksins: Rauðkál með rauðum berjum og steikt spregilkál Jólin Kveikjum einu kerti á Jól DIY - Jólapakki í peysu Jólin Þá nýfæddur Jesús í jötunni lá Jól Sálmur 71 - Velkomin vertu, vetrarperlan fríð Jól Jólaklukkur Jól Jólalag dagsins: Unnsteinn Manúel syngur Blue Christmas Jól
Jólalag dagsins: Jógvan Hansen og Friðrik Ómar sungu um mömmu kyssa jólasvein á íslensku og færeysku Jól
Jólalag dagsins: Jógvan Hansen og Friðrik Ómar sungu um mömmu kyssa jólasvein á íslensku og færeysku Jól