425 g (rúml. 8 dl) hveiti
tsk. hjartarsalt
150 g (rúml. 1 dl) sykur
200 g smjör (ekki smjörlíki)
2 lítil egg
10 steyttar kardimommur eða tsk. kardimommudropar
2 eggjahvítur ofan á
100-150 g afhýddar möndlur ofan á
1 1 dl sykur ofan á
1. Setjið hveiti, hjartarsalt og sykur í skál, myljið smjörið út í. Setjið síðan eggin saman við ásamt steyttum kardimommum eða kardimommudropum. Hnoðið samfellt deig. Geymið á köldum stað í 1 - 2 klst.
2. Fletjið deigið mjög þunnt út, stingið út kringlóttar kökur með glasi. Raðið á bökunarpappír á bökunarplötu.
3. Setjið eggjahvíturnar á disk og sláið sundur með gaffli svo að örlítil froða myndist.
4. Saxið möndlurnar frekar smátt og setjið saman við sykurinn.
5. Penslið kökurnar með eggjahvítunni alveg út á brúnir, stráið síðan möndlu/sykri ofan á alveg út á brúnina, gott er að hafa mikið af möndlum á kökunum.
6. Hitið bakaraofn í 190 C, blástursofn í 180 C. Setjið í miðjan ofinn og bakið í um 10 mínútur eða þar til kökurnar hafa aðeins tekið lit, en þær eiga að vera ljósar.
Athugið: Ef kökurnar eru mjög þunnar verða um 150 stk. af þeirri stærð sem upp er gefin úr þessu deigi, en ef þær eru þykkari verða þær að sjálfsögðu færri.
