Norskur kór í Langholtskirkju 2. desember 2011 20:00 Með norska kórnum Bærum Bachkor, sem heldur tónleika í Langholtskirkju á föstudaginn, spilar Norwegian Cornett & Sackbuts, sem hefur sérhæft sig í tónlist frá endurreisnar- og barokktímanum á upprunaleg blásturhljóðfæri.
Norski kórinn Bærum Bachkor heldur tónleika í Langholtskirkju á föstudaginn klukkan 20. Ásamt kórnum kemur hljóðfærahópurinn „Norwegian Cornett & Sackbuts" sem leika á blásturshljóðfæri frá endurreisnartímanum, meðal annars zink og básúnur. Á efnisskránni eru verk eftir Michael Prätorius, Heinrich Schütz, Giovanni Gabrieli og fleiri. Bæjarfélagið Bærum er liðlega 100.000 manna bæjarfélag vestan við Ósló. Bærum Bachkor starfar við Hövik-kirkju og þar hefur Þröstur Eiríksson, stjórnandi kórsins, verið organisti í 21 ár. Kórinn, sem heldur upp á 25 ára afmæli sitt á þessu ári, flytur einkum kirkjutónlist og leggur vissa áherslu á tónlist eftir Bach. Þröstur Eiríksson, sem er fæddur og uppalinn í Reykjavík, er menntaður kirkjutónlistarmaður við tónlistarháskólann í Ósló og lýkur um þessar mundir doktorsprófi við sömu stofnun. Hann starfaði sem organisti á Íslandi á árunum 1985 til 1990, fyrst við Laugarneskirkju og síðar við Garðakirkju. Frá árinu 1990 hefur hann verið organisti við Hövik-kirkju, vestan við Ósló. Þar stjórnar hann m.a. Bærum Bachkor og hefur flutt með kórnum mörg af stærri verkum tónbókmentanna.- hhs
Lífið Menning Mest lesið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Lífið Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Gagnrýni Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Lífið samstarf Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni Lífið samstarf Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Lífið Nornir komu saman á miðilsfundi Lífið Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Lífið 1991 var eitt stærsta ár tónlistarsögunnar Lífið samstarf Fleiri fréttir Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira