Körfubolti

NBA í nótt: Lakers niðurlægði Cleveland

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Leikmenn Cleveland ganga niðurlútir af velli.
Leikmenn Cleveland ganga niðurlútir af velli. Mynd/AP

LA Lakers vann í nótt stórsigur á Cleveland í NBA-deildinni í körfubolta, 112-57. Var þetta þriðji stærsti sigur liðsins frá upphafi.

Þetta var ellefti sigur Cleveland í röð en liðið er með verstan árangur allra liða í deildinni nú.

Lakers er með gríðarlega sterkt lið en engu að síður kom á óvart hversu ótrúlega mikla yfirburði liðið hafði í nótt. Þetta var stærsti sigur liðsins síðan að skotklukkan var tekin upp. Liðið vann stærri sigra árin 1966 og 1972.

„Maður á aldrei von á svona löguðu," sagði Kobe Bryant. „Maður fer bara út á völlinn og gerir sitt besta. Það gerðum við í 48 mínútur."

Ron Artest og Andrew Bynum skoruðu fimmtán stig hver, Pau Gasol var með þrettán stig og fjórtán fráköst en þeir Lamar Odom og Shannon Brown voru einnig með þrettán stig.

Skotnýting Cleveland var upp á 30 prósentustig í leiknum en liðið hefur nú aðeins unnið 8 af 38 leikjum sínum á tímabilinu.

Cleveland missti LeBron James í sumar eins og mikið hefur verið fjallað um og virtist hlakka í honum yfir óförum hans gömlu félaga, miðað við færslu sem hann skrifaði á Twitter-síðunni sinni.

„Crazy. Karma is a b………….. Gets you every time. Its not good to wish bad on anybody. God sees everything!" skrifaði kappinn og ólíklegt að hann hafi skapað sér frekari vinsældir í Cleveland með þessum skrifum.

San Antonio vann Minnesota, 107-96. Manu Ginobili var með nítján stig en þetta var sextándi sigur liðsins á Minnesota í röð.

Washington vann Sacramento, 136-133, í framlengdum leik. Nick Young skoraði 43 stig fyrir Washington.

Indiana vann Philadelphia, 111-103. Danny Granger skoraði 27 stig og Darren Collison var með 21 stig og þrettán stoðsendingar.

Denver vann Phoenix, 132-98. Arron Afflalo var með 31 stig og Carmelo Anthony 28.

New York Knicks vann Portland, 100-86. Amare Stoudemire skoraði 23 stig og tók átta fráköst. Raymond Felton bætti við sautján stig og fjórtán stoðsendingum.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×