Körfubolti

LeBron James að pæla í því að taka þátt í troðslukeppninni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
LeBron James býr sig undir það að troð boltanum í körfuna í leik með Miami.
LeBron James býr sig undir það að troð boltanum í körfuna í leik með Miami. Mynd/AP
LeBron James vill endilega fá að taka þátt í troðslukeppninni í Stjörnuleiknum í Los Angeles í næsta mánuði en hann er bara hræddur um að það sé ekki skynsamlegt. James er einn af bestu "troðurum" deildarinnar en hefur ekki verið með áður í troðslukeppni Stjörnuleiksins.

James talaði fyrst um það að taka þátt í troðslukeppninni í Dallas í fyrra en hætti svo við. „Ég segi við sjálfan mig að ég ætli að vera með en svo hugsa ég um hvað þetta reynir mikið á skrokkinn og þess vegna hætti ég alltaf við," sagði James.

James segir að það væri mjög krefjandi að keppa á móti Blake Griffin, leikmanni Los Angeles Clippers, á hans eigin heimavelli í Staples Center. „Hann nýtur náttúrulega góðs af því að vera á heimavelli," sagði James.

Troðslukeppnin fer fram 19. febrúar næstkomandi og það bíða örugglega margir spenntir eftir því hvort James láti loksins verða af því og taki þátt.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×