Körfubolti

NBA: Fjórði tapleikur Miami Heat í röð

LeBron James og félagar töpuðu fjórða leiknum í röð í gær.
LeBron James og félagar töpuðu fjórða leiknum í röð í gær. AP

Miami Heat tapaði á heimavelli gegn Atlanta Hawks á heimavelli í NBA deildinni í körfubolta í gær, 93-89 og var þetta fjórði tapleikurinn hjá Miami í röð. Úrslitin réðust í framlengingu.

LeBron James skoraði 34 stig og tók 10 fráköst fyrir Miami en hann náði ekki að skora úr mikilvægum þriggja stiga körfum á lokasekúndunum í venjulegum leiktíma - og framlengingunni. Joe Johnson og Jamal Crawford skoruðu 19 stig hvor fyrir Atlanta.

Charlotte vann Chicago á útivelli 83-82. Aðeins tveir leikir fóru fram í gær í deildinni.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×