Körfubolti

Lakers tapaði gegn Dallas – Shaq aðalmaðurinn í sigri Boston

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Jason Kidd lék vel með liði Dallas geng Kobe Bryant og meistaraliði Lakers í gær.
Jason Kidd lék vel með liði Dallas geng Kobe Bryant og meistaraliði Lakers í gær. AP

Meistaralið LA Lakers tapaði gegn Dallas útivelli í NBA deildinni í körfubolta í gær en 13 leikir voru á dagskrá. Dallas hafði tapað sex leikjum í röð fyrir leikinn en Jason Kidd sýndi gamla takta hjá Dallas og skoraði 21 stig og gaf 10 stoðsendingar. Lakers hefur tapað tveimur af síðustu þremur leikjum sínum og skoraði Spánverjinn Pau Gasol 23 stig fyrir Lakers. Kobe Bryant skoraði 20 stig og tók 10 fráköst.

Carmelo Anthony vaknaði til lífsins hjá Denver og skoraði 35 stig í 112-107 sigri liðsins gegn Oklahoma. Anthony hefur verið orðaður við New Jersey Nets í margar vikur en í gær greindi eigandi Nets frá því að Anthony kæmi ekki til félagsins í leikmannaskiptum eins og til stóð. Kevin Durant skoraði 22 stig fyrir Oklahoma en hann skoraði 44 stig síðast þegar liðin mættust.









Shaquille O'Neal er ekki dauður úr öllum æðum og hér sýnir hann gamla takta og hendir sér á eftir boltanum í leik með Boston. Shaq er 38 ára gamall.

Shaquille O'Neal getur enn látið að sér kveða þrátt fyrir að vera að nálgast fertugt. Miðherjinn skoraði 12 stig og tók 12 fráköst í 86-82 sigri Boston gegn Detroit og hann skoraði 7 stig á lokakafla leiksins. Boston vann upp átta stiga forskot Detroit og var hinn 38 ára gamli Shaq í aðalhlutverki á þeim kafla. Paul Pierce skoraði 23 stig fyrir Boston

Golden State Warriors virðist vera að sækja í sig veðrið en Monta Ellis skoraði 36 stig fyrir Golden State og sigurkörfuna 0,6 sekúndum fyrir leikslok.

Úrslitin frá því í gær.

Cleveland - Phoenix 98-106

New Jersey - Utah 103-95

Orlando - Philadelphia 99-98

Milwaukee - Washington 100-87

New Orleans - Memphis 103-102

Houston - New York 104-89

San Antonio - Toronto 204-95

Dallas - LA Lakers 109-100

Denver - Oklahoma 112-107

Sacramento - Portland 90-94

Golden State - Indiana 110-108

Minnesota - LA Clippers 126-111









NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×