Golf

McIlroy í fínu formi | Sigur tryggir honum efsta sæti heimslistans

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
McIlroy hefur spilað frábært golf á Dove Mountain vellinum í Tucson.
McIlroy hefur spilað frábært golf á Dove Mountain vellinum í Tucson. Nordic Photos / Getty
Norður-Írinn Rory McIlroy tryggði sér sæti í átta manna úrslitum Heimsmótsins í golfi í gær eftir sigur á Spánverjanum Miguel Angel Jimenez. McIlroy mætir San-Moon Bae frá Suður-Kóreu í dag.

McIlroy hefur spilað frábært golf í Tucson í Arizona fylki í Bandaríkjunum undanfarna daga. Takist hinum 22 ára kylfingi að fara alla leið tryggir hann sér efsta sæti heimslistans á kostnað Englendingsins Luke Donald sem vann mótið í fyrra.

Þessir mætast í átta manna úrslitum í dag:

Peter Hanson (Svíþjóð) gegn Mark Wilson (Bandaríkin)

Matt Kuchar (Bandaríkin) gegn Hunter Mahan (Bandaríkin)

Rory McIlroy (Norður-Írland) gegn Bae Sang-Moon (Suður-Kórea)

Lee Westwood (England) gegn Martin Laird (Skotland)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×