Enski boltinn

Nigel Quashie verður spilandi aðstoðarþjálfari hjá ÍR

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nigel Quashie ræðir við Alan Curbishley, þáverandi stjóra West Ham, árið 2007.
Nigel Quashie ræðir við Alan Curbishley, þáverandi stjóra West Ham, árið 2007. Nordic Photos / Getty Images
Miðvallarleikmaðurinn Nigel Quashie verður spilandi aðstoðarþjálfari ÍR að öllu óbreyttu en hann hefur æft með liðinu síðustu daga. Þetta staðfesti Hallgrímur Friðgeirsson, formaður meistaraflokksráðs ÍR, við Vísi.

„Nigel er búinn að fá sig fullsaddan af enskum fótbolta og er hrifinn af því uppbyggingarstarfi sem er hjá ÍR," sagði Hallgrímur en vildi ekki fara nánar út í hvernig það kom til að hann rak á fjörur ÍR-inga. „Það var með krókaleiðum eins og venjulega gerist í þessum heimi."

Quashie er 33 ára gamall, fæddur árið 1978. Hann hóf atvinnumannaferilinn árið 1995 hjá QPR en spilaði einnig með Nottingham Forest, Portsmouth, Southampton, West Brom, West Ham, Birmingham, Wolves og MK Dons. Hann sneri aftur til QPR í janúar 2010 en fór frá félaginu um vorið. Hann á einnig fjórtán leiki að baki með skoska landsliðinu.

Meiðsli settu strik í reikninginn hjá Quashie en hann vonast til að geta spilað með ÍR í sumar. „Það eru tvö ár síðan hann var síðast meiddur en það er verið að athuga þessi mál," segir Hallgrímur en Quashie mun einnig sinna þjálfun hjá ÍR, bæði sem aðstoðarmaður Andra Marteinssonar þjálfara og í nýstofnuðum afreksskóla ÍR.

„Í kvöld verður skrifað undir samninga við fyrstu átta leikmennina í skólanum. Þetta er er afreksskóli sem er stofnaður af knattspyrnudeildinni en það er þjálfararáð sem sér um að velja leikmenn í hann. Til greina koma bæði strákar og stelpur flestir úr 2. og 3. flokki," segir Hallgrímur.

„Með þessu viljum við sýna okkar ungu leikmönnum að það sé hugur í félaginu. Þarna fá þau aukaþjálfun og komið verður inn á styrktarþjálfun, tækniþjálfun, næringarfræði og sálfræði. Næst verður svo að koma á samstarfi við framhaldsskóla. Við viljum gera meira fyrir unga leikmenn heldur að láta þá bara mæta á æfingar."

ÍR varð í níunda sæti í 1. deildinni í fyrra en ljóst er að með tilkomu Quashie og stofnun afreksskólans hefur félagið sett markið hátt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×