Golf

Donald náði efsta sæti heimlistans á ný

Enski kylfingurinn Luke Donald endurheimti efsta sæti heimslistans í golfi með því að sigra á Transitions meistaramótinu á PGA mótaröðinn í gær.
Enski kylfingurinn Luke Donald endurheimti efsta sæti heimslistans í golfi með því að sigra á Transitions meistaramótinu á PGA mótaröðinn í gær. AP
Enski kylfingurinn Luke Donald endurheimti efsta sæti heimslistans í golfi með því að sigra á Transitions meistaramótinu á PGA mótaröðinn í gær.

Úrslitin á mótinu réðust eftir fjögurra manna bráðabana. Þar léku þeir Donald, Bae Sang-moon frá Suður-Kóreu og Bandaríkjamennirnir Robert Garrigus og Jim Furyk.

Norður-Írinn Rory McIlroy var í efsta sæti heimslistans og má búast við að margir geri atlögu að efsta sætinu á næstu vikum og mánuðum.

Þeir léku allir samtals á 13 höggum undir pari vallar en þar á eftir voru fjórir jafnir á -12.

Donald tryggði sér sigur á mótinu með því að setja niður pútt fyrir fugli á fyrstu holu í bráðabananum. Hann lék lokahringinn á 66 höggum eða 5 höggum undir pari.

Þetta er í fimmta sinn sem hinn 34 ára gamli Donald sigrar á PGA móti. Ernie Els var í efsta sæti mótsins megnið af lokadeginum en hann fékk skolla á 17. og 18. braut vallarins og missti hann þar með af lestinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×