Golf

Tiger fagnaði sigri eftir 924 daga bið | snilldartaktar á Bay Hill

Tiger Woods fagnaði sínum fyrsta sigri í kvöld eftir 924 daga bið.
Tiger Woods fagnaði sínum fyrsta sigri í kvöld eftir 924 daga bið. AP
Tiger Woods sigraði á Bay Hill meistaramótinu á PGA mótaröðinni í golfi sem lauk í kvöld. Þetta er tímamótasigur hjá bandaríska kylfingnum sem hafði ekki fagnað sigri á atvinnumóti frá árinu 2009.

Bay Hill virðist vera einn af uppáhaldskeppnisvöllum hjá Woods. Því þetta er í sjöunda sinn sem hann sigrar á þessu móti. Woods var fimm höggum betri en Norður-Írinn Graeme McDowell sem endaði í öðru sæti.

Woods lék lokahringinn á -2 eða 70 höggum og var hann samtals á -13. Þetta er mesti munur á PGA móti frá því að Rory McIlroy sigraði með átta högga mun á opna bandaríska meistaramótinu á síðasta ári.

"Þetta er góð tilfinning, mjög góð tilfinning,“ sagði Woods í sjónvarpsviðtali við NBC eftir keppnina. "Aðstæður voru erfiðar og holustaðsetningar voru hrikalegar. Arnie náði að gera okkur grikk,“ bætti Woods við og vitnaði þar í Arnold Palmer sem er gestgjafinn á þessu móti.

"Hafið gætur á ykkur strákar sem eruð á PGA mótaröðinni. Tiger er mættur til leiks á ný,“ sagði Johnny Miller golfsérfræðingur á NBC sjónvarpsstöðinni eftir keppnina. Woods hefur sigrað á 72 mótum á PGA mótaröðinni.

Fyrir lokahringinn hafði Woods eins höggs forskot á McDowell.


Tengdar fréttir

Fín byrjun hjá Tiger Woods | lofar góðu fyrir Mastersmótið

Tiger Woods byrjaði ágætlega á PGA móti í golfi sem hófst í gær í Orlando í Bandaríkjunum. Hinn 36 ára gamli Woods lék á 69 höggum á Arnold Palmer Invitational meistaramótinu og er hann í fjórða sæti að loknum fyrsta keppnisdegi. Gríðarlegur áhugi er hjá fjölmiðlum sem fylgjast grannt með hverju skrefi hjá Woods í aðdraganda fyrsta stórmóts ársins – Mastersmótsins sem hefst þann 5. apríl.

Tiger Woods í góðum málum í Orlando

Tiger Woods spilaði annan hringinn á Arnold Palmer boðsmótinu á sjö höggum undir pari í gær. Hann deilir forystusætinu með Charlie Wie frá Suður-Kóreu.

Feherty gerði stólpagrín að Tiger Woods | myndband

David Feherty, golfsérfræðingur Golf Channel, er þekktur fyrir að láta flest flakka þegar hann opnar munninn. Írinn, sem var á árum áður atvinnumaður í golfi, er einn þekktasti íþróttafréttamaðurinn sem fjallar um golf og hann er einnig sá umdeildasti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×