Fótbolti

Sigurður Ragnar: Megum ekki misstíga okkur aftur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Daníel
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu, var eðlilega svekktur eftir 1-0 tap síns liðs fyrir Belgíu í kvöld.

„Þessi leikur þróðist á svipaðan máta og þegar við mættum þeim á Laugardalsvellinum," sagði Sigurður Ragnar við Vísi í kvöld en liðin gerðu þá markalaust jafntefli. „Við vorum miklu meira með boltann í kvöld, alveg eins og þá, og sköpuðum okkur nokkur færi. Við hefðum getað klárað leikinn en nýttum ekki færin vel."

„Svo komust þær í skyndisókn og okkur var einfaldlega refsað. Þær fengu tvö færi í öllum leiknum og nýttu annað þeirra."

„Mér fannst við vera með góð tök á leiknum en það var svo auðvitað áfall að fá þetta mark á okkur. Við reyndum ítrekað að finna leið fram hjá þykkum varnarmúr Belganna en það reyndist mjög erfitt. Þær spiluðu með allt sitt lið nánast á sínum varnarhelmingi."

„Það verður þó að hrósa Belgunum fyrir það að leikmenn börðust fyrir sínu og áttu góðan leik. Það verður ekki tekið af þeim," bætti Sigurður Ragnar við.

Belgía er nú komið í toppsæti riðilsins en Ísland er í öðru sæti, einu stigi á eftir Belgum. En Ísland á leik til góða og getur með því að vinna síðustu þrjá leiki sína í riðlinum tryggt sér farseðilinn til Svíþjóðar næsta sumar þar sem úrslitakeppni EM fer fram.

„Þetta var afar svekkjandi því við ætluðum okkur að fá þrjú stig. Við teljum okkur enn vera betri í fótbolta en þær en lið sem spila þétta og góða vörn geta unnið leiki."

„En okkar örlög eru enn í okkar höndum. En nú er ljóst að við megum ekkert misstíga okkur frekar. Það gæti endað þannig að við kæmumst ekki einu sinni í umspil."

Ísland mætir Ungverjalandi og Búlgaríu í júní og svo Norðmönnum ytra í september.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×