Fótbolti

Hjálmar ekki með landsliðinu vegna meiðsla

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Úr landsleik Íslands og Japan.
Úr landsleik Íslands og Japan. Nordic Photos / Getty Images
Hjálmar Jónsson, leikmaður IFK Gautaborgar, verður ekki með íslenska landsliðinu í vináttuleikjunum gegn Frakklandi og Svíþjóð í lok mánðarins.

Hann þurfti að draga sig úr hópnum þar sem hann meiddist í leik liðsins gegn GAIS í sænsku úrvalsdeildinni í gær.

Fram kemur á heimasíðu KSÍ að enginn hafi enn verið kallaður inn í hópinn í stað Hjálmars.

Hjálmar lék sinn fyrsta landsleik í fjögur ár þegar að Ísland tapaði fyrir Japan ytra en það var fyrsti leikur liðsins undir stjórn Lars Lagerbäck.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×