Golf

Frábær annar hringur hjá Axel - lék á fjórum höggum undir pari

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Axel Bóasson.
Axel Bóasson. Mynd/Golfsamband Íslands/Stefán
Keilismaðurinn Axel Bóasson er með tveggja högga forskot fyrir lokahringinn á Egils Gull mótinu í Vestmannaeyjum en þetta er annað mótið á Eimskipsmótaröðinni. Axel lék annan hringinn á 66 höggum eða fjórum höggum undir pari.

Axel er með tveggja högga forskot á Arnór Ingi Finnbjörnsson í GR sem hefur spilað fyrstu 36 holurnar á pari en GR-ingarnir Haraldur Franklín Magnús og Þórður Rafn Gissurarson eru síðan í 3. til 4. sæti á þremur höggum yfir pari.

Axel fékk einn örn og fjóra fugla á öðrum hringnum en hann lét það ekki slá sig út af laginu að hafa tapað fjórum höggum á seinni níu á fyrsta hringnum. Axel spilaði síðan seinni níu á tveimur höggum undir pari í kvöld.

Staðan fyrir lokahringinn í karlaflokki á Egils Gull mótinu:

1. Axel Bóasson, GK -2

2. Arnór Ingi Finnbjörnsson, GR Par

3. Haraldur Franklín Magnús, GR +3

3. Þórður Rafn Gissurarson, GR +3

5. Arnar Snær Hákonarson, GR +4

5. Ólafur Már Sigurðsson, GR +4

5. Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR +4

8. Gísli Þór Þórðarson, GR +5

8. Einar Haukur Óskarsson, GK +5

8. Bjarki Pétursson, GB +5




Fleiri fréttir

Sjá meira


×