Íslenski boltinn

Blikarnir unnu BÍ/Bolungarvík 5-0

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Haukur Baldvinsson skoraði í kvöld.
Haukur Baldvinsson skoraði í kvöld.
Breiðablik er komið í sextán liða úrslit Borgunarbikars karla í fótbolta eftir 5-0 stórsigur á b-deildarliði BÍ/Bolungarvíkur á Kópavogsvellinum í kvöld. Fimm leikmenn skoruðu fyrir Blika í kvöld.

Blikar skoruðu aðeins eitt mark í fyrstu fimm leikjum sínum í Pepsi-deildinni en hafa nú skorað sjö mörk í síðustu tveimur leikjum sínum.

Petar Rnkovic skoraði fyrsta markið úr víti á 12. mínútu, Sverrir Ingi Ingason bætti við marki þremur mínútum síðar eftir aukaspyrnu Kristins Jónssonar og Rafn Andri Haraldsson skoraði þriðja markið á lokamínútu fyrri hálfleiks.

Haukur Baldvinsson og Guðmundur Pétursson (með skalla) bættu síðan við mörkum í seinni hálfleiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×