Körfubolti

Boston í kjörstöðu eftir sigur í Miami

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Paul Pierce fagnar í Miami í nótt.
Paul Pierce fagnar í Miami í nótt. Nordic Photos/Getty
Boston Celtics vann dýrmætan 94-90 útisigur á Miami Heat í úrslitum austurdeildar NBA-körfuboltans í nótt. Boston leiðir í einvíginu 3-2 og þarf aðeins einn sigur til að tryggja sér sæti í úrslitum.

Heimamenn í Miami byrjuðu betur og leiddu að loknum fyrsta fjórðungi 24-16. Þeir nutu liðsinnis Chris Bosh sem kom inn í liðið á nýjan leik eftir meiðsli. Gestirnir bættu í og tókst að minnka muninn niður í tvö stig fyrir lok hálfleiksins, 42-40.

Miami, með LeBron James eins og svo oft áður í broddi fylkingar, bættu við forskot sitt í síðari hálfleiknum og náðu mest níu stiga forskoti. Reynslumiklir Boston-menn örvæntuðu þó ekki og minnkuðu á ný muninn.

Munaði miklu um frammistöðu Rajon Rondo sem stýrði leik liðsins glæsilega og átti þrettán stoðsendingar. Stigahæst var tröllið Kevin Garnett með 26 stig og ellefu fráköst.

Úrslitin réðust þegar Paul Pierce, með þrjátíu stiga manninn LeBron til varnar sér, skoraði þriggja stiga körfu þegar tæp mínúta lifði leiks. Staðan 90-86 og það var Kevin Garnett sem tryggði sigurinn af vítalínunni í lokin.

Allir leikir einvígisins höfðu unnist af heimaliðinu þar til í nótt. Tapið er vafalítið mikið áfall fyrir Miami sem ætlaði sér stóra hluti en liðið tapaði í úrslitum deildarinnar í fyrra gegn Dallas Mavericks.

„Það er slæmt að tapa á heimavelli en við breytum því ekki. Við verðum að skilja við þennan leik og setja alla okkar orku í að vera klárir í slaginn á fimmtudaginn," sagði Erik Spoelstra þjálfari Miami.

Boston og Miami mætast í sjötta leik liðanna í Boston aðfaranótt föstudags. Leikurinn er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport líkt og sjötti leikur Oklahoma City Thunder og San Antonio Spurs í úrslitum vesturdeildar í nótt.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×