Golf

Umboðsmaður Tigers keyrði ölvaður

Steinberg með Tiger.
Steinberg með Tiger.
Umboðsmaður Tiger Woods, Mark Steinberg, er hæstánægður með gengi skjólstæðings síns og svo mikið að hann ákvað að halda fullvel upp á gengi Tigers um helgina.

Hann ákvað svo að keyra heim og lenti í klóm lögreglunnar. Var hann látinn blása í áfengismæli og kom þá í ljós að hann var með tvöfalt meira magn áfengis í blóðinu en leyfilegt er.

Steinberg sagði að málið væri ekki eins og það liti út fyrir að vera. Það væri læknisfræðilegs eðlis en lögreglan hafnaði því. Sagði að það væri ekkert að manninum og engar sannanir fyrir því.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×