Golf

Sögulegur sigur hjá Tiger | Jafnaði Nicklaus

Tiger fagnar í kvöld.
Tiger fagnar í kvöld.
Tiger Woods fór á kostum á lokadegi Memorial-mótsins í kvöld og tryggði sér sögulegan sigur. Þetta var 73. sigur Tigers á PGA-mótaröðinni og hann hefur þar með jafnað sjálfan Jack Nicklaus.

Tiger var í erfiðri stöðu fyrir daginn en lokaspretturinn hjá honum var stórkostlegur. Þá fékk hann þrjá fugla á síðustu fjórum holunum og þar af vippaði hann ofan í á 16. holu.

Þegar upp var staðið vann Tiger með tveggja högga mun. Andres Romero og Rory Sabbatini voru jafnir í öðru sæti.

Tiger spilaði á 67 höggum í kvöld en þetta var í fimmta sinn sem hann vinnur mótið en það er einmitt Nicklaus sem heldur það.

Woods og Nicklaus eru jafnir í öðru sæti yfir flesta sigra á mótaröðinni en Sam Snead vann 82 mót á sínum tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×