Söngvari Bombay Bicycle club á Hressó BBI skrifar 18. júní 2012 10:45 Bombay Bicycle club.
Söngvarinn í hljómsveitinni Bombay Bicycle club mun spila á Hressó á miðvikudaginn kemur ásamt Þorbjörgu Ósk Eggertsdóttur. Tónleikarnir verða órafmagnaðir og saman munu þau taka Bombay Bicycle club lög í bland við lög eftir Þorbjörgu. Söngvarinn Jack Steadman semur öll lög hljómsveitarinnar Bombay Bicycle Club sem kom á Airwaves í fyrra. Hljómsveitarmeðlimir höfðu ekki tíma til að ferðast um landið í það skiptið og nú ákvað Steadman að koma aftur og skoða landið. „Hann hefur alveg oft talað um að honum finnist Ísland svo frábært og hann langaði að koma aftur," segir Þorbjörg sem ætlar m.a. að fara með hann til Vestmannaeyja og sýna honum íslenska fossa næstu daga. Þorbjörg og Jack kynntust á Airwaves í fyrra. Eftir það hitaði Þorbjörg upp ásamt hljómsveit sinni, Mukkaló, fyrir tónleika Bombay Bicycle club í Evrópu. Sömuleiðis var Þorbjörg á ferðalagi um Evrópu á síðasta ári. Í Amsterdam rakst hún óvænt á strákana í Bombay Bicycle club og þeir drifu hana með sér á tónleika þar sem hún kom óvænt fram með hljómsveitinni á sviði. Tónleikarnir á Hressó á miðvikudaginn byrja klukkan 10 og aðgangur verður ókeypis. Auk Þorbjargar og Jack Steadman spilar hljómsveitin Júníus Meyvant.
Tónlist Mest lesið „Ég verð að þakka þér fyrir að herma eftir mér“ Lífið Stjörnulífið: Hilmir Snær og Vala Kristín kósí í Laugum Lífið Er Rothschild-ættin að sölsa undir sig allan heiminn? Lífið Salka Sól látin fara Lífið „Búinn að setja miklu meira í þennan gám heldur en ég tók út“ Lífið Best að geta elt draumana saman Lífið Minnast Davíðs: Hugrakkur, hnyttinn og stór í sniðum Lífið Ólga vegna brotthvarfs Sölku Sólar: „Þetta er vond ákvörðun“ Lífið Guðlaugur Þór kampakátur þegar listinn var kynntur Lífið Laufey og Collab í eina sæng Lífið Fleiri fréttir Lagið minnti á sig í sambandsslitunum Einn vinsælasti íslenski tónlistarmaðurinn óþekktur hérlendis Laufey segir skilið við Wasserman í skugga Epstein-skandals Sturluð vika hjá Kristmundi Axel Úr barnaskemmtunum á klúbbinn Í fyrsta sinn á föstu á Valentínusardaginn 52 ára Sjóðandi hiti hjá stjörnum rappsins Segir bless og sjáumst aldrei við Wasserman Inspector Spacetime í Apple auglýsingu: „Mjög súrrealískt“ „Ég er að heiðra litla Aron“ „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Sjá meira