Tónlist

Iceland Airwaves hefst á Grund

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Krakkar og eldri borgarar bíða spenntir eftir að athöfnin byrji.
Krakkar og eldri borgarar bíða spenntir eftir að athöfnin byrji. Vísir/Sigurjón

Iceland Airwaves hefst í dag og setur Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, tónlistarhátíðina formlega af stað á opnunarhátíð hennar á hjúkrunarheimilinu Grund. Von á er á fjölda erlendra hljómsveita og enn fleiri erlendra tónleikagesta til landsins í ár.

Opnunarathöfnin hefst klukkan 10 í dag og stendur yfir til klukkan 11. Halla Tómasdóttir mun þar setja tónlistarhátíðina af stað áður en söngkonan Rakel og hljómsveitin Lón taka lagið.

Hægt er að fylgjast með athöfninni í beinu streymi hér að neðan:

Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves hefur verið haldin árlega síðan 1999 og er einn stærsti menningarviðburður hér á landi ár hvert. Hátíðin fer alla jafna fram þriðju helgina í október en stendur í ár yfir dagana 4. til 8. nóvember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.