Golf

15 milljónir til íslenskra afrekskylfinga

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Birgir Leifur og Tinna eru meðal þeirra fimm sem njóta góðs af styrknum í ár.
Birgir Leifur og Tinna eru meðal þeirra fimm sem njóta góðs af styrknum í ár. Mynd / Golf
Tilkynnt var um stofnun afrekssjóðsins Forskot á blaðamannafundi hjá Golfsambandi Íslands í dag. Auk GSÍ eru stofnendur sjóðsins Eimskip, Valitor, Íslandsbanki og Icelandair Group en 15 milljónir verða veittar til fimm íslenskra afrekskylfinga árið 2012.

Golf verður aftur keppnisíþróttagrein á Ólympíuleikunum árið 2016 eftir 100 ára hlé. Sjóðurinn á að styðja íslenska kylfinga til að ná því markmiði að komast á leikana. Til þess þurfa þeir að ná árangri á Evrópsku mótaröðinni eða PGA-mótaröðinni í Bandaríkjunum.

Sjóðurinn styrkir fimm kylfinga um sem nemur 15 milljónum króna á árinu 2012. Kylfingarnir sem skipta með sér styrknum eru:

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG

Tinna Jóhannsdóttir, GK

Stefán Már Stefánsson, GR

Ólafur Björn Loftsson, NK

Þórður Rafn Gissurarson, GR

Stífar kröfur eru gerðar til íþróttamanna um ráðstöfun styrkjanna og ber þeim að leggja fram æfinga- og keppnisáætlanir auk fjárhagsáætlunar fyrir verkefni sín. Auk þess eru gerðir sérstakir samningar við hvern kylfing um að þeir virði reglur Íþrótta- og Ólympíuhreyfingarinnar.

Sjónvarpsviðtöl við Birgi Leif og Tinnu verða birt á Vísi síðar í dag.


Tengdar fréttir

Birgir Leifur: Væri fín afmælisgjöf að komast á Ólympíuleikana

"Þetta skiptir alltaf miklu máli að fá fjármagn inn í þetta til þess að láta draumin rætast,“ sagði Birgir Leifur Hafþórsson atvinnukylfingur úr GKG í dag þegar greint var frá stofnun afrekssjóðsins Forskot. Auk GSÍ eru stofnendur sjóðsins Eimskip, Valitor, Íslandsbanki og Icelandair Group en 15 milljónir verða veittar til fimm íslenskra afrekskylfinga árið 2012.

Tinna: "Ég var búin með allt í buddunni“

"Áður en þessi dagur kom þá var ég búin með allt í buddunni. Stofnun afrekssjóðsins hefur mikla þýðingu fyrir okkur, þetta gefur okkur ákveðið frelsi og við þurfum ekki alltaf að vera með áhyggjur af peningum á meðan við erum að æfa og keppa,“ sagði atvinnukylfingurinn Tinna Jóhannsdóttir úr Keili við Vísi í dag þegar greint var frá stofnun nýs afrekssjóðs hjá Golfsambandi Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×