Golf

Keiliskonurnar Anna og Signý mætast í úrslitum

Sigurður Elvar Þórólfsson á Leirdalsvelli skrifar
Anna Sólveig Snorradóttir og Signý Arnórsdóttir.
Anna Sólveig Snorradóttir og Signý Arnórsdóttir. seth
Anna Sólveig Snorradóttir úr Keili og Signý Arnórsdóttir úr Keili mætast í úrslitum á Íslandsmótinu í holukeppni sem fram fer á Leirdalsvelli, heimavelli GKG. Anna hefur komið gríðarlega á óvart á þessu móti en þetta er í fyrsta sinn sem hún tekur þátt, Signý sigraði á þessu móti árið 2009 og hún lék til úrslita í fyrra en tapaði þeim leik gegn Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur úr GR.

„Ég átti ekki von á þessu, það gat allt gerst, og ég er bara ánægð með þetta," sagði hin 17 ára gamla Anna Sólveg í morgun eftir að hún hafði lagt Ingunni Gunnarsdóttur úr GKG 5/4 í undanúrslitum. „Ég og Signý höfum ekki mæst áður að mig minnir en þetta verður bara skemmtilegt," sagði Anna Sólveig.

„Þetta er í þriðja sinn sem ég fer í úrslit. Ég hef ekki leikið mikið gegn Önnu Sólveigu, enda er fimm ára aldursmunur á okkur, hún hefur leikið gríðarlega vel á þessu móti," sagði Signý Arnórsdóttir úr Keili eftir að hún hafði lagt Tinnu Jóhannsdóttur úr Keili að velli í undanúrslitum 3/2. „Ég er að pútta mun betur á þessu móti en ég hef gert fram til þessa í sumar. Og heilt yfir er ég sátt við spilamennskuna hjá mér. Vonandi náum við Keilisþrennu á þessu móti," sagði Signý. Bróðir hennar. Rúnar Arnórsson, er í keppni um þriðja sætið á þessu móti í karlaflokki en Birgir Leifur Hafþórsson verður mótherji hans í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×