Íslenski boltinn

Fjölnir kafsigldi Hauka og skellti sér á toppinn

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Marinó skoraði síðasta mark Fjölnismanna í kvöld.
Marinó skoraði síðasta mark Fjölnismanna í kvöld. Mynd / Vilhelm
Fjölnismenn nýttu sér tap Ólsara í Víkinni í kvöld og skelltu sér á topp deildarinnar með 4-0 sigri á Haukum í toppslag 1. deildar karla.

Aðeins munaði einu stigi á liðunum í öðru og þriðja sæti deildarinnar fyrir leiki kvöldsins og koma úrslitin því nokkuð á óvart.

Bjarni Gunnarsson kom heimamönnum yfir strax á 4. mínútu og heimamenn leiddu með einu marki í hálfleik. Í síðari hálfleik fundu Grafarvogsbúar hins vegar leiðina í mark gestanna í þrígang.

Pablo Punyed skoraði annað mark Fjölnis á 65. mínútu og og Illugi Þór Gunnarsson það þriðja úr vítaspyrnu á 71. mínútu. Marinó Þór Jakobsson gulltrygði stórsigur heimamanna með marki undir lok leiksins.

Fjölnir hefur tveggja stiga forskot á Víking Ólafsvík og Hauka í efsta sæti deildarinnar að loknum leikjum kvöldsins.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×