"Neitaði engum um viðtal" Hjörtur Hjartarson skrifar 23. júlí 2012 14:09 Guðjón segir það rangt að hann hafi ekki gefið kost á viðtölum í gær
Guðjón Þórðarson, þjálfari Grindvíkinga í knattspyrnu segir það ekki rétt að hann hafi neitað að veita fjölmiðlum viðtal eftir tapleik liðsins í Pepsideild karla gegn FH í gærkvöld. Þetta sagði hann í viðtali við Hjört Hjartarson í útvarpsþættinum Boltanum á X-inu í morgun. Fram kom í fjölmiðlum í gær, meðal annars á Vísi að Guðjón hefði yfirgefið völlinn án þess að gefa kost á viðtölum. "Það fellur ekkert með okkur Grindvíkingum, ekki einu sinni í umfjöllun fjölmiðla. Það er rangt eftir haft að ég hafi neitað viðtölum í gær. Það er illa frá sagt og það er bara ekki rétt. Menn verða að standa vaktina og fara satt og rétt með þegar verið er að fjalla um svona hluti", sagði Guðjón ákveðinn. "Það voru allir fjölmiðlar uppteknir þegar ég kom út úr klefanum. Ég fór þá og sótti mér kaffibolla, kom aftur út og þá voru þeir enn uppteknir og þá fór ég." Guðjón bætti því við að sjálfsögðu hefði brúnin verið nokkuð þung eftir leik, annað væri óeðlilegt. "Ef það þykknar ekki í manni þegar maður tapar leikjum með þessum hætti þá er eitthvað að. Menn sem hafa skap og vilja til að vinna, það þykknar í þannig mönnum þegar þeir tapa. Manni svíður þegar maður sér liðið sitt tapa leik eins og þessum í gær", sagði Guðjón Þórðarson.
Íslenski boltinn Innlendar Íþróttir Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Fótbolti Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Íslenski boltinn Emin Kadri heldur áfram að vera ósigraður Sport Vann erfitt utanvegahlaup þrátt fyrir brákað rifbein Sport Lygilegur uppgangur: „Besta botnlangaaðgerð í sögunni“ Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Uppgjörið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Uppgjörið: ÍA - Keflavík 4-4 | Jafnt eftir markaregn í Akraneshöllinni Sjáðu vítið sem Þórsarar vildu fá Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Leikur FH og Þórs færður vegna frosts Sjáðu fimmu Hrafnhildar Ásu í lokaumferðinni FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Matthías í stað Viktors við hlið Sölva Sjá meira
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“