Íslenski boltinn

Allir Íslandsvinirnir í byrjunarliði Færeyja - markvörður Man. City á bekknum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Símun Samuelsen í leik með færeyska landsliðinu.
Símun Samuelsen í leik með færeyska landsliðinu. Mynd/AFP
Lars Olsen, þjálfari færeyska landsliðsins, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt á móti Íslandi á Laugardalsvelli í í kvöld en leikurinn hefst klukkan 19.45.

Allir Íslandsvinirnir fá að byrja leikinn en þar á meðal er Jónas Þór Næs sem spilar með Val í Pepsi-deildinni. Pól Jóhannus Justinussen, fyrrum leikmaður Vals, Fróði Benjaminsen, fyrrum leikmaður Fram og Símun Samuelsen, fyrrum leikmaður Keflavíkur eru líka í byrjunarliðinu í kvöld.

Gunnar Nielsen, sem er á málum hjá Manchester City, þarf að sætta sig við það að byrja á bekknum í kvöld en í markinu er Jákup Mikkelsen sem leikur með ÍF í Færeyjum.

Byrjunarlið Færeyja í kvöld:

Markvörður:

Jákup Mikkelsen

Varnarmenn:

Jónas Þór Næs

Rógvi Baldvinsson

Odmar Færø

Pól Jóhannus Justinussen

Miðjumenn:

Fróði Benjaminsen

Hallur Hansson

Christian Lamhauge Holst

Sóknarmenn:

Daniel Udsen

Jóan Símun Edmundsson

Símun Samuelsen

Varamannabekkurinn:

Kristian Joensen

Finnur Justinussen

Bogi Løkin

Hjalgrím Elttør

Rene S. Joensen

Gunnar Nielsen

Pætur Dam Jacobsen

Jóhan Troest Davidsen




Fleiri fréttir

Sjá meira


×