Körfubolti

Paul fór í aðgerð á þumli

Stjörnuleikstjórnandi LA Clippers, Chris Paul, gekkst undir aðgerð á þumli í gær og að sögn talsmanns Clippers gekk aðgerðin vel.

Paul meiddist á æfingu með bandaríska landsliðinu fyrir ÓL. Hann náði þó að spila með liðinu á leikunum.

Clippers vildi þó að hann færi í aðgerðina svo þumallinn yrði ekki til vandræða er tímabilið hefst.

Það er ekkert sem bendir til annars en að hann mæti til leiks í toppformi er flaitað verður til leiks í NBA-deildinni á nýjan leik.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×