Íslenski boltinn

Kolbeinn enn í Hollandi | Fer í læknisskoðun á morgun

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Pjetur
Kolbeinn Sigþórsson er enn í Hollandi og mun á morgun hitta sérfræðing til að meta meiðsli hans. Ísland leikur gegn Noregi á föstudagskvöldið.

Kolbeinn hefur verið að glíma við meiðsli í öxl síðustu dagana og gat ekki spilað með Ajax um helgina. Ef hann fær grænt ljós frá læknum á morgun mun hann koma til Íslands á fimmtudag.

Það er því ekki enn útilokað að Kolbeinn muni spila gegn Noregi á föstudag en íslenska landsliðið kom saman til æfinga nú í vikunni og æfði á Laugardalsvelli í hádeginu.

Ísland mætir svo Kýpverjum ytra á þriðjudaginn næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×