Körfubolti

Bosh klár í að leysa miðherjastöðuna hjá Miami

Chris Bosh, ein af stjörnunum í meistaraliði Miami Heat í NBA-deildinni, segist vera til í að taka við miðherjastöðunni hjá liðinu.

"Það er að verða mér eðlislægt að leysa þá stöðu. Ég er að þróast sem leikmaður og ætla mér að hjálpa liðinu á sérstakan hátt undir körfunni," sagði Bosh.

Bosh var lengi vel á móti því að leysa þessa stöðu hjá Miami en það er að breytast.

Bosh er búinn að bæta á sig nokkrum kílóum af vöðvum til þess að vera betur í stakk búinn að leika undir körfunni.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×