Körfubolti

Kobe er meiddur á fæti

Kobe Bryant, leikmaður LA Lakers, er að glíma við meiðsli á fæti þessa dagana og gat ekkert æft með Lakers í gær vegna meiðslanna.

Bryant æfði út vikuna en var of þjáður til þess að æfa í gær. Hann hefur nú verið sendur í nánari rannsóknir af læknum Lakers-liðsins.

Læknar liðsins vilja hafa varann á þó svo þeir hafi ekki áhyggjur af því að meiðslin séu alvarleg.

Kobe er ekkert unglamb lengur enda er hann að byrja sitt sautjánda tímabil í deildinni. Hann er fimmti stigahæsti leikmaðurinn í sögu deildarinnar. Hefur unnið fimm NBA-titla og fjórtán sinnum hefur hann verið valinn í stjörnulið deildarinnar.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×